Góðan daginn elsku landar og útlendingar.
Þessi helgi sem er að verða búinn var mjög góð svona afslöppunar helgi þær eru BARA nauðsynlegar. Á Föstudags kvöldi fórum við hjúin á smá skrall hérna heima hjá okkur og buðum við frábærum vinum í teiti sem fór mjög vel fram svona easy going party sem endaði niður í bæ hjá sumum. Ég eins og vanalega drakk og drakk en enginn urðu áhrifin þannig að ég held að ég sé bara hættur að drekka í bili. Laugardagurinn var rólegur bara slakað á og leikið við strákana og um kvöldið var kveðju dinner hjá múttu & papa svo farið heim og horft á imbann Ísak Páll var með vin sinn í heimsókn og gisti hann hérna hjá okkur mjög gaman hjá þeim video tölva nammi og alles. Sunnudagurinn byrjar vel ég fékk að sofa út omg mjög gott. En annars er allt gott hérna meginn allir í góðum gír en söknum siggu og gabríelu mjög mikið en hittum þær aftur í Apríl. Heyrumst fljótlega aftur .
gessi out…………..
